Íd frumsýnir "Endalaus" 4. febrúar

 

 

Endalaus
Fallegt og tilfinningaríkt verk eftir verðlaunadanshöfund


Þann 4. febrúar næstkomandi frumsýnir Íslenski dansflokkurinn nýtt verk eftir Alan Lucien Öyen, ungan norskan danshöfund sem hefur unnið til fjölda verðlauna fyrir verk sín. Alan hefur getið sér gott orð fyrir falleg, tilfinningarík og ljóðræn verk með djúpri innri merkingu.  

Alan notar talað orð og myndband í dansverkinu til að skapa sérstakan söguþráð í anda heimildarmyndar. Okkur eru birt brot úr hugsunum, endurminningar um horfna ástvini. 

Hvað hverfur og hvað situr eftir í minningunni þegar samband tveggja einstaklinga rofnar. ”Þegar þú og ég erum ekki lengur við.

 

Hver saga hefur jafn margar hliðar og þátttakendurnir. ”Við færum okkur nokkra metra til vinstri og hlutirnir horfa öðruvísi við ”


Tónlistin í verkinu er eftir Ólaf Arnalds sem hefur þrátt fyrir ungan aldur selt þúsundir hljómplatna og fyllt tónleikahallir víða um heim, þar á meðal Barbican Hall í London. Tónlist Ólafs færir mann í aðrar hæðir með viðkvæmum, rómantískum og sinfónískum tónsmíðum.  Ólafur byggir brú á milli klassískrar tónlistar og pop tónlistar þar sem hann blandar saman píanói og strengjahjóðfærum við rafræn hljóð og trommutakta.

Sýnt á Stóra sviðinu: 4/2  7/2  14/2  21/2  28/2  og 7/3 

Miðasala er í síma 568 8000 eða hér á netinu


Gleðileg Jól kæru vinir


Djammvika - fersk og tilraunakennd dansveisla

steve_flikk_vefur_930429.jpg Dagana 25. til 28. nóvember verður Djammvika hjá Íslenska dansflokknum. Við sýnum þá fjögur ný verk í vinnslu eftir framsækna og spennandi danshöfunda sem fara ótroðnar slóðir við sköpun sína og þenja formið. Listafólkið sem við höfum fengið til liðs við okkur eru Kristján Ingimarsson, Tony Verzich, Steinunn Ketilsdóttir ásamt Brian Gerke og Peter Anderson.
Við sýnum tvö verk saman í einni sýningu.

Sýning A
Shit eftir Kristján Ingimarsson
Cardiac Strain (Hjartastreita) eftir Tony Vezich
Sýningartímar
25/11 kl. 20 - Frumsýning
26/11 kl. 20 - Önnur sýning
28/11 kl. 17 - Þriðja sýning 

Sýning B
Heilabrot eftir Brian Gerke og Steinunni Ketilsdóttur
Kjúklingur í sauðagæru eftir  Peter Anderson
Sýningartímar
27/11 kl. 20 - Frumsýning
28/11 kl. 20 - Önnur sýning
28/11 kl. 22 - Þriðja sýning

Sýnt á Nýja sviðinu - Verð kr. 2.450


Tilboð: Miðaverð á báðar sýningingar (A+B) er 3.450 kr.
Vinsamlegast hafið samband við miðasölu í síma 568 8000 til að tryggja ykkur þetta tilboð.


Sýningar að hefjast á hinni vinsælu Fjölskyldusýningu

svanurinn_girl_vefur_913150.jpg Það styttist í fyrstu sýningar hjá Íslenska dansflokknum á þessu sýningarári.   Við hefjum leikinn sunnudaginn 27. september með nýrri Fjölskyldusýningu. Þessar sýningar hafa ávallt verið mjög vel sóttar þar sem sett eru saman brot úr skemmtilegum og vinsælum verkum frá síðustu árum. Það kennir því ýmissa grasa á sviðinu og meðal annars er sýnt úr verkinu „The Match“ þar sem umfjöllunarefnið er fótbolti, kómísk saga af eldri borgurum sem endar í allsherjar matarslag úr „Endastöð“ og rómantískur og fallegur dúett úr „Svaninum“.

Sýningin er ætluð allri fjölskyldunni og er markmiðið að kynna nútímadans fyrir fólki og þá sérstaklega yngri kynsóðinni.  Þess vegna býður Íslenski dansflokkurinn börnum sem eru 12 ára og yngri ókeypis inn á sýninguna og 13-16 ára fá miðann á hálfvirði (1.725 kr.)

Samhliða Fjölskyldusýningunni er Íslenski dansflokkurinn að sækja heim grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu og býður 11 og 12 ára krökkum upp á stutt námskeið í nútímadansi.  Markmiðið með þessum námskeiðum er að kynna listdans fyrir nemendunum og gefa þeim kost á að upplifa listgreinina af eigin raun.

Það eru aðeins 4 sýningar: 27/9  4/10  11/10 og 18/10  kl. 14:00 á Stóra sviðinu í Borgarleikhúsinu.

Miðasala í síma 568 8000 eða á www.id.is


Sýningarárið 2009-2010: Framsækin, ljúf, aðgengileg og djörf dagskrá í boði.

Sýningarár 2009-2010 Starfsemin hjá Íslenski dansflokkurinn er nú komin á fullt og er starfsfólk og dansarar að hita upp fyrir ansi fjölbreytt sýningarár.   Dagskrá flokksins í vetur ber þessi merki að vera allt í senn framsækin og ljúf, aðgengileg og djörf, fyrir þá sem vilja nýjar áskoranir sem og þá sem vilja fegurð og yndisauka.

Dansarinn, áskriftarkort Íslenska dansflokksins, verður áfram i í boða á sömu góðu kjörunum. Með Dansararnum færðu að velja miða á þrjár af fjórum sýningum flokksins í vetur fyrir aðeins 6000 kr. eða 2000 kr.  fyrir hverja sýningu  (fullt verð fyrir 3 sýningar er kr. 10.350).  Handhafar Dansarans geta valið þrjár af eftirfarandi fjórum sýningum flokksins sýningarárið 2009-2010.

September – október
Fjölskyldusýning - Frítt fyrir börn yngri en 12 ára.
ÍD sýnir brot úr fimm skemmtilegum og aðgengilegum verkum fyrir ungt fólk og fjölskyldur sem hafa ánægju af og áhuga fyrir nútímadansi og leikhúslífinu.  Frábær sýning fyrir alla þá hefur  alltaf langað -  en ekki látið verða að því -  að koma á sýningju hjá dansflokknum
Sýnt á Stóra sviðinu 27/9  4/10  11/10 og 18/10 

Nóvember
Djammvika (2x2) - Fersk og tilraunakennd dansveisla

ÍD sýnir fjögur verk í vinnslu eftir framsækna og spennandi danshöfunda. Þetta eru Kristján Ingimarsson, Tony Verzich, Steinunn Ketils ásamt Brian Gerke og Peter Anderson. Höfundarnir fara  ótroðnar slóðir og þenja formið.
Sýnt á Nýja sviðinu: Fyrri tvö verkin sýnd 25/11 og 26/11  Seinni tvö verkin 27/11 og 28/11                    

Febrúar
Endalaus - Framúrskarandi verk eftir verðlaunadanshöfund

ÍD sýnir nýtt frumsamið verk eftir Alan Lucien Oyen, ungan norskan danshöfund sem hefur unnið til fjölda verðlauna fyrir verk sín. Alan er þekktur fyrir fallegar og tilfinningaríkar sýningar sem innihalda bæði  ljóðrænan dans og mælt mál. 
Sýnt á Stóra sviðinu: 4/2  7/2  14/2  21/2  28/2  og 7/3           

Maí
Fordlandia -   Dansviðburður ársins á Listahátíð í Reykjavík
Íslenski dansflokkurinn, Sinfóníuhljómsveit Íslands og Listahátíð í Reykjavík sameina krafta sína og frumsýna metnaðarfullt nýtt verk við tónlistina Fordlandia eftir Jóhann Jóhansson.  Sýningin er einstök upplifun sem enginn listunnandi má missa af.
Aðeins tvær sýningar í lok maí (nánar auglýst síðar)

Akureyri, alþjóðlegt samstarf og kræsileg nýjung fyrir gesti Borgarleikhússins
Í lok október heldur Íslenski dansflokkurinn til Akureyrar þar sem í samvinnu við LA verða sýnd  3 af vinsælustu verkum síðustu ára. Gestum á leiksýningar Borgarleikhússins verður einnig boðið upp á kræsilega nýjun í desember en þá gefst þeim kostur á að sjá stutta danssýningu áður en leiksýningar kvöldsins hefjast fyrir aðeins 490 kr. aukalega.

Íslenski dansflokkurinn er án efa sú íslenska sviðslistastofnun sem hefur ferðast og sýnt víðast á síðustu árum en  dansflokkurinn er mjög í virkur í alþjóðlegu samstarfi.  Í ár heldur flokkurinn áfram á þessari braut t.d. með nýju samstarfsverkefni við pólska dansflokkinn Silesian Dance Theatre sem er talinn fremsti nútímadansflokkur Póllands.  Stórverkefnið Keðja, sem er samstarfsverkefni 8 þjóða verður fyrirferðarmikið í starfsemi flokksins árinu en því verkefni lýkur einmitt með afar fjölbreyttum dansviðburði hér í Reykjavík í október 2010, með þátttöku fjölmargra innlendra sem erlendra  aðila.

ÍD fær fimm Grímutilnefningar

Djöflafúgan

Sýningarárið 2008-2009 var einstaklega íslenskt hjá dansflokknum og voru sýnd alls sex ný frumsköpuð íslensk verk á árinu. Dansflokkurinn hefur nú fengið fimm Grímutilnefningar fyrir þrjú af þessum verkum.  Tilnefningarnar voru afhentar í dag 29. maí af forseta Íslands, Hr. Ólafi Ragnari Grímssyni, við hátíðlega athöfn í Borgarleikhúsinu . 

Gunnlaugur Egilsson fær tvær tilnefningar bæði sem besti danshöfundur sem og besti dansari.  Gunnlaugur er æviráðin sem dansari hjá Konunglega Sænska  Ballettnum og hefur skapað sér töluvert nafn á erlendum vettvangi. Hann kom til samstarfs við Íd í fyrsta sinn sem danshöfundur haustið 2008 er hann samdi verkið  „Djöflafúgan“ fyrir dansflokkinn. Í framhaldi af þvi verkefni steig hann á svið sem gestadansari í stórsýningunni „Velkomin heim“ og er hann tilfnendur fyrir bæði þessi verk.  Þetta var einnig í fysta sinn sem danshöfundurinn Sveinbjörg Þórhallsdóttir vann með ÍD og er hún tilnefnd sem danshöfundur ársins fyrir afraksturinn sem var hið tilfinningaþrungna verk „Skekkja“.

Íslenski dansflokkurinn fékk eftirfarandi tilnefningar

DJÖFLAFÚGAN
Danshöfundur ársins: Gunnlaugur Egilsson
Dansari ársins: Steve Lorenz

SKEKKJA
Danshöfundur ársins: Sveinbjörg Þórhallsdóttir
Dansari ársins: Lovísa Ósk Gunnarsdóttir

VELKOMIN HEIM
Dansari ársins: Gunnlaugur Egilsson

„Við hjá ÍD erum afar stolt af okkar fólki og óskum þeim innilega til hamingju með tilnefninguna. Ég óska þeim sem og öðru listafólki velfarnaðar á stóra deginum þann 16. júni næstkomandi“ sagði Katrín Hall listrænn stjórnandi ÍD um tilnefningarnar.


ÍD í Bláa Lóninu á síðasta vetrardag

bláa lónið Íslenski dansflokkurinn og Bláa Lónið kynna Transaquania – Out of the blue. Alþjóðlega þekktir listamenn koma saman ásamt dönsurum flokksins og skapa einstakan dans og listviðburð sem fer fram ofan í Bláa lóninu á síðasta vetrardag, þann 22. apríl næstkomandi.

Höfundar verksins hafa öll skapað sér nafn sem listamenn á alþjóðlegum vettvangi en þetta eru dansararnir Erna Ómarsdóttir og Damien Jalet ásamt listakonunni Gabríellu Friðriksdóttur. Frumsamin tónlist við verkið er eftir reykvísk-ástralska tónskáldið Ben Frost og gítar- og bassaleikarann Valdimar Jóhansson.

Aðeins þetta eina kvöld færa listamennirnir Bláa lónið á annað tilverustig og skapa heim þar sem náttúran, listin og maðurinn sameinast í einstakri upplifun.  Leikhús kvöldsins er Bláa lónið sjálft þar sem gestir  taka sér sæti í heitum jarðsjónum og njóta sýningarinnar í einni af bestu heilsulindum heims. Innblásturinn í verkið sækja listamennirnir í uppruna lónsins og að þar finnist þörungar sem endurspegla árdaga plöntulífs á jörðinni og þróun lífs. Hugmyndin  að baki verkinu er að í hinum silkikennda bláma lónsins kviknar líf.  Á töfrandi hátt birtast áhorfandanum afkvæmi hinnar dulúðlegu alkemíu lónsins og í ljósaskiptunum tekur þróunarsaga þessa nýja og óræða lífheims á sig ægifagrar en um leið ógnvekjandi myndir. Um er að ræða verk í vinnslu sem þróað verður áfram.

Þetta verður einstakt kvöld í lok þessa ótrúlega íslenska vetrar.  Að lokinni sýningu verður vetur kvaddur og sumri fagnað í Lava sal Bláa lónsins og allir stíga dans saman. 

Miðaverð er aðeins kr. 3.000 fyrir viðburðinn, aðgang í lónið og sumarfögnuðinn eftir sýninguna.
Aðeins þessi eina sýning, miðvikudaginn 22. Apríl - miðasala í síma 568 8000 eða á www.id.is

 

Nánar um listræna aðstandendur

Höfundar: Erna Ómarsdóttir, Damien Jalet og Gabríela Friðriksdóttir
Tónlist: Ben Frost og Valdimar Jóhannsson
Leikmunir og búningar: Gabríela Friðriksdóttir og Raven
Ljósahönnun: Aðalsteinn Stefánsson

Erna Ómarsdóttir hefur hlotið fjölda viðurkenninga fyrir verk sín, bæði Grímuverðlaun og viðurkenningar sem besti dansari og danshöfundur í Ballet Tanz. Erna hefur unnið með leikstjórum, danshöfundum og listafólki eins og Jan Fabre, Sidi Larbi Cherkoui, Les Ballet C de la B, Gabríelu Friðriksdóttur, Björk Guðmundsdóttur, Placebo, Robert Wilson, Jóhanni Jóhannssyni og Margréti Söru Guðjónsdóttur. Erna samdi verkið “Við erum öll Marlene Dietrich” fyrir Íslenska dansflokkinn en verkið sló rækilega í gegn og hefur verið sýnt víða um heim.

Damien Jalet hefur unnið sem dansari og danshöfundur með helstu dansflokkum í Evrópu. Damien hefur skapað sín eigin verk og einnig verið í nánu samstarfi með Sidi Larbi Cherkaoui, einum af stærstu nöfnunum í dansheiminum í dag.  Damein hefur einnig unnið með þekktum listamönnum af öðrum sviðum eins og leikstjóranum Arthur Nauzyciel, fatahönnuðinum Bernhard Willhelm, ljósmyndaranum Nick Knight og tónlistarmönnunum Christian Fennesz og Stefano Scodannibio.
hefur skipað sér í hóp okkar fremstu samtímalistamanna og hefur hún einnig skapað sér nafn erlendis fyrir verk sín.  Gabríela  vinnur með hina ýmsu miðla sem dæmi þá gerir hún skúlptúra, teikningar, málverk, hljóðskúlptúra og tónverk.  Gabríella var fulltrúi Íslands á Feneyjar-tvíæringnum árið 2005 og fékk hún Ernu Ómarsdóttir og Björk í samstarf við sig fyrir það verkefni en Gabríela er einnig þekkt fyrir samstarf sitt með með tónlistarkonunni heimsþekktu.
 
Höfundar Transaquania—Out of the Blue hafa áður unnið saman að hinum ýmsu verkefnum, sem dæmi þá sköpuðu þau öll þrjú verkið “Ofaett” og Erna og Damien dönsðuð saman í “Foi” sem hlaut mikla alþjóðlega athygli. Það er því athyglisvert að sjá útkomu áframhaldandi samvinnu þessa góða hóps.


Velkomin heim frumsýnt í kvöld fimmtudaginn 5. febrúar

Velkomin heim Mikil eftirvænting og spenna ríkir nú á Stóra sviði Borgarleikhússins aðeins nokkrum klukkustundum fyrir frumsýningu á febrúarverki Íslenska dansflokksins, Velkomin heim
 
Febrúarsýningin er jafnan stærsta sýning ársins hjá flokknum, að þessu sinni hefur mikið verið lagt í sviðsmynd og alla umgjörð og afar og stór hópur dansara og tónlistarmanna munu birtast á sviðinu.

Velkomin heim
er samstarfsverkefni þriggja danshöfunda og þriggja tónlistarmanna.
 
Danshöfundarnir eru þau Katrín Hall, listrænn stjórnandi Íslenska dansflokksins, Cameron Corbett og Peter Anderson sem eru báðir dansarar hjá flokknum.  Höfundarnir hafa skapað heim sem mun ekki skilja neinn eftir ósnortinn.
 
Þrír valinkunnir tónlistarmennirnir koma til liðs við ÍD fyrir þetta verkefni með nýtt frumsamið efni. Þetta eru drymbillinn Sigtryggur Baldursson, Pétur Ben gítarleikari og tónsmiður og Frank Hall gítarleikari úr hljómsveitinni Ske.  Tónlistarmennirnir munu einnig stíga á svið og taka þátt í sýningunn.  Þeir kalla fram kröftuga stemmningu með takföstum trumbuslætti og fallegum hráum rokktónum sem geta breyst úr mús í móhíkana á augabragði.

Búningar Filippíu Elísdóttur og Agnesku Baranowska vísa til fortíðar, nútíðar og framtíðar og á sviðinu munu birtast hetjur liðinna alda sem og dagsins í dag.  Lýsing og sviðsmynd Aðalsteins Stefánssonar setur svo umgjörðina sem er stílhrein og gljáandi en samtímis gróf og ber.

Nánar um verkið:
Velkomin heim er skapað í umróti þess augnabliks sem við lifum nú. Titill verksins vísar til ferðalags einstaklings og samfélags - þessarar hringrásar sem við virðumst vera dæmd til að endurtaka um alla eilífð. Hringrás uppbyggingar, velsældar,  erfiðleika og endurmats.

 Höfundarnir skyggnast undir yfirborðið og skoða manneskjuna og þörf hennar til að tilheyra eflast og njóta.  Jafnframt togstreituna við okkar nánasta umhverfi og uppbyggingu samfélagsins.

Unnið er með hugtök eins og sjálfsdýrkun, ágirnd, vonbrigði og örmögnun á þann opna og víðtæka hátt sem táknmál nútímadansins býður upp á.  Getum við brotist út úr hringrásinni? hver er máttur einstaklingsins? Hvar liggur frelsið og hamingjan í raun.


Íslenski dansflokkurinn sýnir fimm verk í Caen í Frakklandi nú í nóvember

HNYvefur Íslenski dansflokkurinn heldur til Frakklands mánudaginn 17. nóvember til að sýna á Festival Les Boreales í Caen.

Flokkurinn sýnir þar alls fimm verk á tveimur kvöldum og og hefur Festival Les Boreales tekið upp hugmynd ÍD um „fjölskyldusýningu“ þar sem seinna kvöldið er sett saman dagskrá með verkum sem höfða sérstaklega til ungs fólks.

Fyrra kvöldið, þann 20 nóvember verður hið verðlaunaða verk Kvart eftir Jo Strömgren sýnt og einnig Happy New Year eftir Rui Horta.

Seinna kvöldið, þann 22. Nóvember  þar sem þemað er fjölskyldusýning, verða þrjú verk á dagskránni sem eru Critic´s Choice eftir Peter Anderson, Maðurinn er alltaf einn eftir Ólöfu Ingólfsdóttur og Endastöð eftir Alexander Ekman.

Það er athyglisvert að segja frá því að verk Ólafar Ingólfsdótur, Maðurinn er alltaf einn, er nú 10 ára og því  elsta verkið á verkefnaskrá ÍD og það verk sem flestir dansara flokksins hafa lært. 


Dans-andi endursýnt í nóvember

Í nóvember verður þetta vinsæla og verðlaunaða verk endursýnt. Dans andi er yfirskrift yfir þessi tvö frábæru en gjörólíku verk eftir tvo af mest spennandi danshöfundum Norðurlanda, Jo Strömgren og Alexander Ekman.

Kvart eftir Jo Strömgren konung dansleikhússins
Í Kvart dansa dansararnir hvor fyrir annan. Ákafur og fagur dans við magnaða tónlist eftir finnska tónskáldið Kimmo Pohjonen sem hefur meðal annars unnið með Sigurrós og  Múm. Búningar eru eftir Steinunni Sigurðardóttir, einn fremsta fatahönnuð okkar.

Höfundur Kvart Jo Strömgren hlaut Grímuverðlaunin 2008 sem besti danshöfundurinn fyrir Kvart og Emilía Gísladóttir var valinn besti dansarinn fyrir frammistöðu sína í verkinu

Endstöð eftir Alexander Ekman 
Ef Strömgren er kóngurinn þá er Ekmann krónprinsinn
Í Endastöð fer saman látbragð og dans þar sem við fylgjumst með hópi gamalmenna í leit þeirra að æskunni. Verkið er leikrænt, létt, fyndið og rómantískt.

Aðeins 2 aukasýningar - 9/11 og 16/11


****Fréttablaðið
“Flott sýning og skemmtileg”
“Þessa sýningu gæti ég vel hugsað mér að sjá aftur”
Páll Baldvin Baldvinsson, Fréttablaðið
 
“Allir dansararnir voru framúrskarandi”
“Tónlistin...er hrein hugljómun”
Martin Regal, um Kvart í Morgunblaðinu

“er Endastöð staðfastlega fyndið út í gegn”
Martin Regal  um Endstöð í Morgunblaðinu


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband